Kommenta svo!!!!

Hvernig ertu í enni????

30.09.2008 18:43:43 / Elísa

HALLÓ GOTT FÓLK!!!!!!!!!!!

Jæja ég hef ákveðið að byrja uppá nýtt, þar sem lífið hjá manni hefur breist frekar mikið og er ég byrjuð að blogga á nýjum stað.... Endilega komið við þar....:D :D :D :D

elisadagmar.blogspot.com

Sjáumst...... Svo á að kommenta fyrir komu sína TATA


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 21:58:05 / Elísa

Jæja þá er að blogga smá ;)

Bara svona aðeins að segja frá mér og mínum.....

Það er alltaf nóg að gera hjá okkur... Allt að gerast í undirbúningi fyrir stóra daginn.... nánast búið að gera allt sem þarf að gera með fyrirvara ;);) ALLT AÐ GERAST :D

Sl. helgi var nóg að gera, ég fór út með Guðmundu og Pálínu og Guðni minn fór í Pool.....
Laugardaginn fór ég svo í afmæli hjá Eggerti og Guðni fór að vinna á Amster....

Þessi vika er svo ekkert búin að vera skemmtileg.... Var heima á mánudaginn og ældi öllu sem hægt er að æla.... Þriðjudagurinn var skárri en ennþá í rúmminu... Miðvikudaginn fór ég nú í vinnu en heilsan var ekkert góð... Þannig að Fimmtudagurinn var ennþá verri, og ég heima..... Núna er ég samt öll að koma til og ætla ég að fara í vinnu á morgun, enda hef ég engann tíma í þetta þar sem að ég er að fara í frí með manni og syni... Við erum að fara í sveitina í sauðburð, ekki veitir af þar sem að mér skillst að allir séu orðnir frekar þreittir heima þar sem að þau eru bara 3 og 2 í vinnu svo að það er ekki mikið hægt að sofa..... Sofa bara þegar maður er dauður hehehehe ;)  En þetta veður bara fínt.. Fara með borgarbarnið mitt í sveitina og sjá hvað hann getur þar heheheh það verður eitthvað skrautlegt en hann á eftir að plumma sig vel held ég..... ;) Læt hann ná í lömbin og sonna.... hehehahahah verð að hafa með mér video til að sýna öllum hehehahaha :D:D:D:D:D sorry elskan kisssss:haha: :lol: En nóg með það ;)

Svo er fluttningur í aðsigi... við erum búin að fá aðra íbúð, enda leigusamningurinn að renna út hér, og ekki veitir að stærra svo stelpurnar fái nú sitt herbergi, þurfi ekki að deyla því með Ásgeiri... Teingdapabbi er semsagt búinn að vera að byggja rétt fyrir utan Selfoss og er að flytja þangað og ætlar að leigja út íbúðina í seljarhverfi og við slóum bara til og ætlum að leigja af honum... hún er 4 herb. og erum við samt ekkert að borga mikið meira en hér, þar sem að allt er á sprengdu verði.... íbúðin hér t.d búin að hækka um 15 þús síðan ég flutti inn aleg óþolandi... svo skilja þeir ekkert í því að fjölskyldur verða gjaldþrota hérna í hrönum... ohhhhhhh ætla ekki að fara að tala um þetta verð svo ógeðslega reið af tilhugsuninni...... en já þannig að það er nóg að gera á þessu heimili í sumar.. vá.... hehe 8) 

Búin að selja boruna mína.. LOKSINS... Svo það er bara eftir að selja skodann sem liggur ekki eins á, en ekki væri verra að fá aðeins stærri bíl sko.... Börnin sitja alltaf í kremju þegar þau eru öll, svo erfitt er að fara í langferðir með þau öll á skodanum svo við erum búin að auglýsa skódann og ætlum að reyna að finna betri bíl í rólegheitunum, ekki verra í sumar þar sem við verðum víst nóg á ferðinni þær helgar sem stelpurnar eru, ættarmót og ferðir í sveitina.... heheheh alveg hreint merkilega nóg að gera og allt að gerast hehehe :):);)

EN já þið segið það... veit ekki hvað ég á að segja ykkur meira sko..... ætlaði bara að segja nokkur orð en þá kom bunan bara, alltaf eins ;)

En já núna er Guðni minn farinn í fimmtudagspoolið sitt með strákunum og ég að horfa á sjónvarpið með öðru, svo ég ætti kannski bara að fara að horfa á það með báðum, hvernig hlómar það????? hehe :$

EN já, meira ÆTLA ég EKKI að segja í bili, en endilega kommentiði hjá mér þegar þið kíkið inn :D

Segi þá bara TATA og farið vel með ykkur og já GLEÐILEGT SUMAR :D


» 13 hafa sagt sína skoðun

01.04.2008 12:43:06 / Elísa

Allt að gerast hjá minni :D

Hæ hó og HALLÓ..............

Hvað er að frétta gott fólk?????????????????

Af mér er allt ljómandi....

Ásgeir Örn fór norður um páskána og við skötuhjúin fórum upp í sumarbústað í Ölfurborgum miðvikudaginn 19.Apríl..... komum við uppeftir um kvöldmat, og ég kom okkur fyrir og eldaði svo mat handa okkur... Eftir matinn vaskaði Guðni upp og ég kveikti á kertum og sjónvrpinu og gerði mig til í að fara að koma mér vel fyrir í sófanum með hvítvínið mitt :):) Hvað haldiði að maðurinn minn hafi svo gert þegar hann var búinn að vaska upp.... fékk sér hvítvín og settist hjá mér... ekki leið á löngu er hann fór bara á skeljarnar og bað mín :^) :^) Ég varð alveg eins og kleina og fór bara að hlægja til að byrja með..... Vissi ekki alveg hvernig ég átti að mér að vera.... Alger kjáni.... En ég hugsaði mig nú ekki mikið um heldur sagði JÁ:):) Þetta kom mér ekkert smá á óvart en var ég samt MJÖG glöð :D:D ( Þannig að Elísa ætlar að fara að gifta sig... usssssssss hehe ) Svo getiði nú áttað ykkur á restinni af kvöldinu, fer ekkert frekar út í það sko hehehehehe :lol:
Á fimmtudeginum fórum við aðeins í bæinn, turftum að kíkja aðeins til teingdamömmu og fara í búð.... svo var bara drifið sig aftur uppeftir og haft það kósý.....
Á föstudeginum komu svo Thelma og Vésteinn til okkar og voru fram á sunnudag, við grilluðum, fórum í pottinn, drukkum smá vín og höfðum það ekkert smá kósý.....
Mánudeginum forum við á Selfoss í búð og grilluðum okkur goðann mat og höfðum það ennþá meira kósý, og með því.... ;)
Þriðjudagurinn var bara tekið til og þrifið bústaðinn og brunað í bæinn... Ásgeir Örn kom með flugi um kvöldið og var ekkert smá gaman og gott að fá hann heim :):)

Sl. Helgi komu stelpurnar og var heldur betur fjör um helgina... Fórum við uppá akranes á laug, og Inga Birna frænka klippti stelpurnar, brunað í bæinn og pabbi kom í kvöldmat og sat aðeins fram á kvöld... Við hjónin kíktum svo aðeins á rúnntinn og fengum okkur ís og vorum komin heim um miðnætti þar sem Helga pæja var að fara út á lífið  :)
Sunnudagurinn var heldur betur skrautlegur og erfiður..... Ég byrjaði á því um hádegi að ná í pabba og hann fór með mér í Rúmmfatalagerinn og keypti fyrir mig nýjann sófa þar sem minn er ónýtur :D:D  Fór ég svo og dreif börnin í spariföt því við vorum að fara í fermingarveislu hjá Alex, syni Óðinns hennar Kiddyar.... Stoppuðum við ekki lengi þar, þar sem að hún Rakel mín fékk frekjukasst og fórum við því bara úr veislunni.... :S:S Keyrðum við Guðna heim því það var fótbolti í sjónvarpinu, ég keyrði smá rúnt svo að Rakel gæti sofið smá, því við vorum að fara í barna afmæli hjá Hafdísi dóttir Vésteins.... Þangað fór ég ein með ÖLL börnin mín, og viti menn, Guðni kom klukkutíma síðar en fékk ekkert að stoppa því hann varð að fara út með Rakel þar sem að hún var búin að fá ansi mörg frekjukösst því að Elísa ( erfiða mamman) lét ekki eftir henni, og var hún ekki orðin húsum hæf..... Löbbuðum við Ásgeir Örn og Aníta heim að lokinni veislunni, tók ég stelpurnar til og fórum við með þær heim til mömmu sinnar.... Þaðan fórum við aðeins til tengdamömmu og þaðan aftur í afmælið svo Guðni gæti fengið sér smá að borða..... :):) hehehehe Já geggjaður dagur ha??? hehe :D

Svo tók bara ný vinnuvika við og er hún ekki einu sinni hálfnuð..... ;)

Nk. helgi verðum við svo með trúlofunarveislu og vonandi verður bara gaman hjá okkur...

Kem með innskot af því síðar....

En já ég veit svo sem ekki hvað ég á að segja meira í bili sko....

jæja Aníta mín ertu ánægð núna???????? heheheh :D

En meira ætla ég ekki að segja í bili

Hamingjusama konana segir þá bara TATA


» 18 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 09:36:42 / Elísa

Já ég alltaf jafn dugleg að blogga ;)

En já hvað er svo að frétta af ykkur þeim sem skoðið bloggið mitt???

Hjá mér er bara gott að frétta.... Alltaf að vinna bara og sinna fjölskyldunni :):)

Sl. helgi héldum við Guðni smá partý, komu Skúli, Anný, Gísli, Thelma, Vésteinn, Maggi, Ásdís, Pabbi, Jói frændi og Guðbjörn.... Var bara svaka fjör hjá okkur og kíktum við svo í bæinn og fórum á Dubbliners þar kom svo Valdimar og slóst í hópinn með okkur... Sátum við þar um stund og rölltum svo yfir á Amsterdam.... Var bara dansað þar og skemmt þér fram undir morgun.... Bara fjör :):)

Þessi vika sem af er liðin er bara búin að vera róleg og verður það það sem eftir er af henni....

Stelpurnar koma svo um helgina, en mín verður nú sennilega ekki mikið heima þar sem að ég ætla að fá bíl og vera bara að Taxast um helgina, ekki veitir af.... :)

Svo er hann Ásgeir minn bara að leggja land undir fót og ætlar að vera hjá Ömmu sinni í sveitinni um páskana og við hjúin ætlum að fara í sumarbústað í ölfusborgum og láta fara vel um okkur.... Thelma og Vésteinn verða eitthvað með okkur og verður bara grillað, legið í pottinum og haft það kósý mmmmmmmmmmm :):)

En já meira hef ég svo sem ekki að segja... Er bara uppá verkstæði í vinunni þar sem verið er að setja bretti á bílinn minn og lappa hann eitthvað upp, ekki veitir af :):) hehehhe

En já já segir ekki meira í bili en TATA

Kommentiði nú hjá mér ekki bara lesa :):)

Lifið heil ;)

» 20 hafa sagt sína skoðun

25.02.2008 17:35:52 / Elísa

Hvernig væri að ég myndi nú blogga aðeins??

Hvað er að frétta????
Það er nú ekkert smá langt síðan ég bloggaði síðast... usssss
En ég ákvað að koma með smá hérna núna.....

Það er bara flott að frétta af minni,, Komin í geggjaða vinnu og er ég að vinna sem bílstjóri hjá Jarðkraft ehf... Er ég eina konan á þeim vinnustað og tríta þeir mig eins og drottningu, ekki slæmt það sko ;);)

Ásgeir Örn er bara alltaf í leikskólanum og vinnur með mömmu sinni eftir hann á daginn ekkert smá duglegur.. Var ég að skrá hann í Grunnskólann í dag, ekkert smá erfitt fyrir kellu, Litla barnið mitt að fara í skóla, dísesssss tíminn er ekkert smá fljótur að líða maður.... úffffffff heheheh
Mér finnst ég bara að verða gömul... Komin með barn í grunnskóla ja hérna hér....
En já já þetta verður bara spennandi og gaman fyrir Ásgeir sem er mjög spenntur fyrir þessu öllu saman..... Ætlar sko að fara í tónlistarskóla og læra á Gítar, æfa fótbolta, fimleika og ég veit ekki hvað.... Það verður gaman þegar minn þarf að velja á milli... Ekki alveg hægt að gera allt sem maður vill sko.... ;)


Svo er heldur betur breyting á fjölskyldunni, Guðni er semsagt fluttur inn og gengur það bara vel :) Tökum alltaf stelpurnar hans aðra hverja helgi og er þá fjölskyldan heldur betur stór..... stækkaði alveg um 3 einstaklinga.... heheheheh

En já þannig er það hjá mér at the moment.... og hef ég ekki mikið að segja meira að sinni... en ég skal reyna að fara að vera dugleg að blogga svona hvað er að gerast hjá mér og mínum....

En þangað til TATA




» 24 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 16:03:48 / Elísa

Jæja þa er að koma með eitthvað sma eftir helgina.....

Helgin var bara mjög goð hja mer.....

Föstudagurinn var þannig að við Asgeir vorum bara að spoka okkur... Höfðum það bara gott og gerðum ekki mikið.... Horfðum a sjonvarpið langt fram a kvöld en farið var að sofa svo um 1....

Vöknuðum snemma og forum kl.11 á jolaföndur i leikskolanum... Var bara mjög gaman, Thelma og Vésteinn komu með stelpurnar og Erna og Bangsi með Gunnar... Vorum við þar fram yfir hádegi og fórum svo ég og Erna með strákana niðrá Gráa köttinn þar sem Drífa systir er að vinna, fengum okkur að borða mmmmmjög gott.... Þaðan var svo ferðinni haldið í smáralind, strakarnir fengu að fara í Veröldina okkar og við Erna rölltum um... Svo forum við a tónleika þar sem hgaldnir voru eftir að Kóka Kóla lestin var buin að keyra fram hja.... Fórum við svo til Ernu og Bangsa og borðuðum við saman... Fórum við Ásgeir svo að ná i Helgu þar sem að eg var að fara i afmæli hjá honum Grjona mínum... Tókum svo Ernu með í bakaleiðinni og hún kom svo með mer i afmælið... Var mikið af fólki þar og Drífa kom lika að hitta okkur.... Þegar afmælið var búið fórum eg,Drífa,Erna,Jónas og Grjoni a Dubbliners þar sem Hilmar minn var að spila... Skemmtum okkur ekkert sma vel, hittum Berg ,Pippen, Begga og Emma og fóru þeir svo með okkur yfir a Amsterdam.... Hitti ég þar einn mjög sætann i jakkafötum og með Fjolublátt bindi, ekkert smá sexy maður usssssssss.... Töluðum við saman og viti menn.... Elísa endaði semsagt ekki heima hjá ser.... isssss það er nú lifnaðurinn a manni dísessss hehehehe :D:D:D:D ;);)

Vaknaði rétt rumlega hádegi og Guðni keyrði mig heim... Við Ásgeir gerðum ekki mikið, tokum til og gerðum kósý og gláptum á TV... Guðni kom og kíkti a okkur og farið var að sofa uppúr miðnætti ;) :lol:8) hahaha...

Svo er það bara dagurinn í dag.... Rólegheit, sit núna heima hjá Thelmu að passa brynju því hún fór að fund doktorsins....... Svo ætlum við bara að fara heim og gera ekki neitt...

Svo er bara skoli framundan næstu 3 dagana... og þa má kellingin fara að keyra leigubil sem eg ætla að vera dugleg við... Ekki veitir af ;)

En já þar hafiði það...

Kellingin buin að átta sig á ýmsu og líður bara helvíti vel með það sko..... :D:D

EN þangað til næst kiss kiss

TATA


» 11 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 14:58:18 / Elísa

Trukkurinn bloggar...

Viti menn Elísa Dagmar er komin með öll réttindi:D:D Og náði þeim uppá 10... enga villu og ekki neitt.... magnað ha ;);)

Fór semsagt í gær í 2 síðustu verkleguprófin í leigubílnum og rútunni.... :D

Svo þegar það var búið fór ég og náði í Ásgeir í leikskólann og við kíktum aðeins á Thelmu... Þau buðu okkur svo í mat og við fórum heim um rúmlega 7.... Ásgeir fór í bað og svo í háttinn og ég lagðist fyrir framan tv og var þar til að verða 12...

Dagurin í dag er bara rólegur.. Er bara íþví að leyta mér að vinnu, gengur hægt, en er í viðræðum við 2 og sjáum hvað kemur út úr því.... ;)

Í kvöld er Skari að heimta að ég komi með þeim á tónleika, hann vill endilega halda uppá þessi réttindi mín... Ekkert smá sætur í sér usssss heh eh e :D:D

Svo er það bara helgin framundan... Hún verður örugglega í rólegri kanntinum, nema fer í afmæli til Grjóna á laug... Fínt bara...

En já hef svosem ekkert mikið að segja... segi þá bara TATA 


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 22:36:13 / Elísa

Bloggedí blogg

Hvað á maður að segja...????

Hvernig væri að kommenta þið sem skoðið?????????????

Já já ég segi bara allt skít sæmilegt...

Er að klára meiraprófið á morgun. Fer í verklega prófið í Rútunni og Leigubílnum og þá er þetta bara búið.. Á bara eftir að fara á harkaranámskeiðið....:):):):):):D:D

Sl. Helgi þá kíkti ég aðeins út með Ölmu, Guðmundi, Ásdísi og Magga... Það var bara fínt...

Laugardaginn þá var ég bara heima að skreita allt hátt og látt ekkert smá fínt hjá okkur... Drífa kom rúmlega 5 og fór með Ásgeir Örn fyrir mig til Jóns Odds þar sem að ég var að fara á Jólahlaðborð... Maggi kom um 6 og við sátum til rúmlega 7 þegar Ísleifur kom og sótti okkur.. Maturin var fínn og eftir hlaðborðið fórum við heim til eins vinnufélaga Magga og þaðan niður í bæ... Hittum Guðmundu og vorum með henni þar sem eftir var af kvöldinu.. Á leiðinni heim kíktum við á Þórey í korter og þaðan heim... Mjög fínt kvöld....

Sunnudagurinn .. Fór og sótti Ásgeir og við fórum heim að kúra... Pabbi kom til okkar um kvöldmat og borðaði með okkur pizzu :):)

Mánudagurinn var þannig að ég fór með Ásgeir í leikskólann og fór svo á fund hjá Síslumanni... ætla ekkert að vera að ræða það hér... Hver veit hverjir lesa bloggið hjá manni ;);) Þaðan fór ég í ökutíma á leigubílnum... Þaðan fór ég bara heim og sótti svo ásgeir...

Dagurinn í dag... Vöknuðum mjög snemma þar sem Ásgeir varð að mæta mjög senmma á leikskólann þar sem að þau voru að fara að heimsækja Árbæjarsafn... Þaðan fór ég í atvinnuviðtal sem gékk vel og kemur meira út úr því á morgun... Þaðan beint í ökutíma og þá eru allir ökutímar búnir og próf á morgun eins og ég sagði hér fyrr.... Sótti ég svo Ásgeir Örn og sagði hann mér að ekkert smá gaman hefði verið að fara og skoða safnið... F'orum við í búðina og elduðum okkur mat... Núna var ég að koma úr sturtunni og er bara að glápa á Imbann og vafra á netinu...

Hef svo sem ekki mikið annað að segja ... Blogga fljótlega með framhald af þessu lífi mínu

TATA 


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 20:29:11 / Elísa

Ekki mikið að frétta en hvað með það... blogga skal ég smá...

Jæja hvað er að frétta af ykkur??

Hér er barasta ekki neitt að frétta... Í gær var bara leti og reyndar var ég aðeins í atvinnuleyt...

Dagurinn í dag var aðeins fjörugri... Fór með Ásgeir í leikskólann, fór svo í Ökutíma í Rútunni og var það bara fínt... Þaðan fór ég heim til Thelmu og sat þar á spjalli aðeins, þangað til ég sótti Ásgeir í leikskólann og við fórum vestur í bæ, með gömlu ónýtu tölvuna hennar Ölmu til Ásgeirs því hann var að fara norður með flugi... Ný kominn í bæinn til að vinna en strax beðinn um að koma aftur norður og vinna því einhver handleggsbraut sig á bornum þar.... Þaðan fórum við í Smáralindina og ég fór í bankann og við fengum okkur að borða.... Drifum okkur svo bara heim og Thelma og Vésteinn komu svo skömmu síðar með Brynju, ég er semsagt að passa Brynju Rós út vikuna þar sem að Vésteinn þessi elska bauð konunni sinni út til Danmerkur fyrir Jólin að versla og slappa af.... :) ekkert smá sætur... Og Thelma bara glöð :D

Þannig að núna er ég bara búin að vera að reyna að koma þeim niður og glápa á TV....

Hef svosem ekki meira að segja í bili... Bara svona að henda einhverju inn....

TATA


» 12 hafa sagt sína skoðun

24.11.2007 18:39:11 / Elísa

Hvað segir fólkið....

Verð að segja smá er það ekki málið....

Fimmtudagurinn sl.. var heldur rólegur.... Helga mín kom svo eftir kvöldmat og ég fór út að borða með Magga mínum á Caruso ekkert smá gott... Fékk mér sjávarréttarsúpu og risarækjur á risotto verry good....  Eftir matinn kíktum við aðeins á Sólon en sátum þar nú stutt.... hehe Þaðan kíktum við á Næsta bar þar sem Valdimar,Grjóni,Jónas,Sólveig,Hinrik,Þórhallur,Beta og fl. sátu og drakk ég með þeim einn bjór... Þaðan kíktum við Maggi aðeins á Skara sem var að vinna á Gauknum og þaðan aðeins inn með nefið á Organ og þaðan var bara farið heim... Fínt að komast aðeins út... :)

Föstudagurinn var ekkert skemmtilegtur...:(:( EN gerði ég nú samt mikið... Byrjaði á því að fara með Ásgeir Örn í 5 ára skoðun sem gékk alveg brilliant.. 10 í öllu bara og sprauta í lokinn... smá grettur þar hehe fer nú ekkert að grenja fyrir framan ókunnuga sko.. :) Svo fór ég með hann í klippingu hjá Hrönn og minn maður sagði bara sama og venjulega heheheh sem er semsagt hanakambur... Hrönn gat varla klippt hann hún hló svo mikið... Svo mikill kallll heheh Þaðan fór minn bara á leikskólann og ég fór á vinnumiðlun og svo á Féló.. Hitti aðeins Ölmu og Sollu í kringunni og náði svo í Ásgeir örn og Svo Daníel í skólann... Var semsagt að passa fyrir Þórey í gær og gékk það bara vel...  Strákarnir fóru að sofa um 10 og þá lagðist ég bara og glápti á tv og hékk í tölvunni... gaman ussss

Dagurinn í dag.. vaknað fyrir hádegi..  fórum svo og hittum Ernu og Gunnar í kringlunni og leyfðum við strákunum að fara í ævintýraland og fengum við okkur að borða á Kringlukránni á meðan... bara fínt... Svo var bara farið hingað heim... Skutluðum svo pabba í partý og hann var svo að fara á jólahlaðborð í vinnunni hjá sér... Svo er Þórey að koma til mín og ég ætla svo að kíkja í innflutningspartý hjá Betu vínkonu og svo er bara allt óráðið...

EN langaði bara aðeins að skrifa... segi ekki meira í bili en TATA 


» 5 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 18:02:16 / Elísa

Sl helgi... Verð aðeins að segja frá árshátíðinni...

Jæja þið...

Ég fór semsagt eftir hádegi á Laugardaginn uppá Hvanneyri til Ölmu.. Hún bauð mér að koma með sér á árshátíðina hjá skólanum... Kom þangað um kl.2 og þá fórum við uppá Reykholt þar sem að við vorum að fara að gista á hóteli hehe :):) Byrjuðum að sötra svona um 4 eða ég.. Alma var nú bara orðin veik kellan... Farið var í pottinn og farið í léttann leik..

Fórum við svo og gerðum okkur sætar og rútan kom svo og sótti okkur rúmlega 7 og brunað var í samkomuhús í Lundareykjadal... Maturinn var heldur seinn þar sem að kokkurinn var veðurteptur einhverstaðar sem er mjög svo fyndið :D en hann kom á endanum með þessann dýrindis mat.. Skemmtiariðin voru mjög svo fyndin og haldið var svo ball á eftir... EKkert smá skemmtileg hljómsveit og var dansað mjög mikið... Alma greyjið var nú bara á efrihæðinni og lá þar í sófa alveg að drepast... en við Marta og restin af bekknum þeirra skemmtum okkur alveg þrusu vel... Ballið var til 4 minnir mig og þá kom rútan og keyrði okkur aftur í reykholt... Var þá aðeins tjattað og farið svo að sofa...Alveg hreint magnað kvöld....

Vaknaði um 11 á sunnudaginn og við Alma brunuðum á Hvanneyri þar sem við fengum okkur að borða og ég jafnaði mig aðeins og Siggi kom svo með mér í bæinn og var ég að lenda þar um 5 leytið.... bara gott kvöld...

Vikan bara búin að vera mjög róleg og hef ég látið lítið fyrir mér fara...

Ekki meira um það en TATA 


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.11.2007 15:28:14 / Elísa

Ég ætti nú kannski að blogga smá...

Nenni ekki að blogga... EN ætla að henda hér smá inn...

 

T.d eins og sl. helgi... Hún var mjög fín...

Föstudagurinn var þannig að pabbi fór með Ásgeir Örn austur á Selfoss svo ég ákvað að fara á Tiesto með krökkunum... Fór til Sonju og Ragga um 9 leitið og þar var Sonja búin að láta prenta á boli.."It sucks to be you" hehehe F'orum við Anný, Gísli, Sonja, Lauga og Þórdís saman og það var bara alveg ágætt.... Ég fíla þetta ekki alveg eins og þau en ágætt var þetta bara.... :):) F'orum við svo heim til Ragga og Sonju þegar þetta var búið og enduðum við Anný og Gísli hjá Skara og Elísa sofnaði nú bara þar.... heheheh :)

Fór ég svo heim og lagði mig.... Ásgeir kom heim og Alma kom þar rétt á eftir... Alma fór að lita á sér hárið og sonna og svo um svona 7 var Elísa orðin góð og fór í sturtu og gerði mig til.. Valdimar kom rúmlega 8 og við sátum og kjöftuðum til hálf 10 þá fórum við með Ásgeir Örn til Þóreyjar og við fórum heim til Issa og Ingu í Mývetningapartýið.... Þar var alveg þrusu stuð með góðum hóp af fólki.... Um 3 þá var öllum sópað út og fórum við Ég, Valdimar, Jónar, Dóri, Hinrik, Heiða, Bryndís, Þórður og Issi á kofann þar sem Alma var.... Alma fór svo bara heim og við fórum á Príkið.... Þaðan fórum ég, Jónas, Þórður og Valdimar á Amsterdam og ég endaði svo í Hog Riders og Eggert keyrði mig svo heim... :)

Náði ég svo í Ásgeir og við höfðum kósý kvöld með popp og dvd.... Bara góð helgi :):) Allir glaðir..

Mánudagurinn var bara þannig að við mæðginin vorum bara heima... Nenntum ekki að fara í leikskólann... heheheh Guðni kom svo heim og guð hvað það var gott að fá hann heim :D:D:D Gaf kellunni ilmvatn og Hring... ekkert smá sætur... :):)

 

Svo er vikan bara búin að líða eins og aðrar... Og ég er svo að fara á Hvanneyri á Laugardaginn á árshátíð hjá Ölmu og Ásgeir verður bara hjá Guðna á meðan.... ;);)

EN ég sit núna á Hresso með henni Drífu minni og ég held að ég nenni bara ekki að blogga meira í bili svo ég segir bara TATA

Ekki nema þið viljið að ég fari aðeins að bulla sem ég kann nú alveg sko.... EN ég held að ég nenni ekki að kafa svo djúpt í minn tóma koll til að finna það svo að ég held mig bara við TATA

Jú ég get alveg sagt ykkur söguna með konuna sem átti ekki pening í stætó... en æji ég nenni því ekki núna....

En þið sem skoðið þetta... Kommentið ...

TATA

 

Hehe búin að segja TATA 3 sinnum.. það er ekkert smá sem ég hef greinilega að segja ... En segi svo sem ekki mikið þannig að ég held ég segi TATA einu sinni enn......

BLESSSSSSSSSSSSS 


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 14:38:49 / Elísa

Á ég ekki að segja smá frá helginni...????

Jæja þá skal ég aðeins segja ykkur frá helginni sl...

Fimmtudagurinn var þannig að ég var heima með Ásgeir veikann.... Gerði því ekki mikið en að hanga heima en um kvöldmat kom Anna systir til mín að passa því kellingin var að fara á konukvöld með Thelma,Ernu,Þóreyju og Guðmundu... Var það konukvöld ZikZak og haldið á Broadway,... Geggjað stuð enda Laddi veislustjóri... :) Þar var drukkið mikið og hlegið... þaðan að því loknu skelltum við okkur bara í pool í Lágmúla og vésteinn kom og hitti okkur þar... Þar var ennþá meira drukkið og endað heima hjá Þóreyju í meira spjalli og að sögn Vésteins vorum við ornar mjög skrautlegar og mikið hægt að hlægja af okkur.... heheh verði þeim bara að góðu þá... heheheh.... Fór ég svo heim og mín var svo full að hún hringdi í kallinn og heimtaði að hann kæmi yfir því ég vildi ekki vera ein... Þá tók eitthvað sjó við og minn hló bara af kellunni sem talaði hann í kaf... Hann hafði semsagt bara gaman af ´mér svona ruglaðir :D:D heheh

Föstudagurinn var smá þreittur :S og sonurinn ennþá veikur... En það var nú í góðu lagi... Alma kom í bæinn og ég fór með hana í eina búð og hún var svo bara hjá pabba sínum... Guðni kom eftir kvöldmat og lá hjá mér fram að miðnætti þá fór hann að vinna í dyrunum á Amster.... Éf horfði á sjónvarpið aðeins lengur og fór svo bara að sofa .... :D

Laugardagurinn rann upp og vaknað var snemma til að fara að græja og gera afmælisveislu eða pylsuparty kl. 12..... Náðum við í Ölmu um 11 og Thelma og co, Erna og co, Þórey og co og Pálína og co komu í afmæli.... :) Mikið af gjöfum og voða gaman.... Þegar það var búið fórum við aðeins að snúast.. og Ásgeir Örn fór til Þóreyjar því hann ætlaði að gista hjá Daníel... Það var ekkert smá sport ussss.... Fórum við í ljós og ríkið pg heim var haldið... Ég gerði mig til því mín var að fara út að borða með kallinum... Hann kom og við ætluðum að fara á Ruby Tusday... nei nei það var fullt á báðum stöðum svo við enduðum á Grillhúsinu Tryggvagötu sem var alveg geggjað... Fengum okkur bæði kjúklingabringu mmmmm og Corona bjór með :) Geggjaður matur.. Og hvað haldiði að kellingin hafi svo fengið í eftirmat... Hálsfesti... Sérsmíðaða 14 karata gull hálfsfesti... :) :D:D Ég var alveeg eins og kúkur þegar hann gaf mér þetta en guð hvað hún er falleg.... :) Takk ástin....:) Svo þegar við vorum búin að borða þá fórum við heim til mín og fengum okkur aðeins í glas með Ölmu sem þar var... Hún fór svo fljótlega og við fórum þá heim til Guðna og þar hittum við Ragga,Sonju,laugu og komu svo Siggi,Gísli og Anný... Raggi og Sonja fóru fljótt en við sátum áfram til að verða hálf 3 og tókum þá taxa niðrí bæ... Við Anný kíktum aðeins á Celtic fyrst... En fórum svo fljótt niðrá Amster þar sem strákarnir okkar voru... Alma kom svo fljótt og Jói og Valdimar líka... Skemmtum við okkur bara þokkalega og kíktum svo aðeins heim til mín en við Guðni gáfumst nú fljótt upp og fórum að kela... heheheh:lol:

Vaknað var um kl. 4 á sunnudaginn og ég fór og sótti Ásgeir Örn sem hafið farið í leikhús með Daníel vini sínum og Þóreyju... Ekkert smá sport.. Stoppaði þar um stund og fór svo til Drífu og Þorra í mat... mmmmmm Ekkert smá gott, enda Þorri alveg snilldar kokkur.... :) Komin heim um 9 og Guðni kom um 10 og glápt var á TV of lengi og farið svo að sofa.....

Mánudagurinn.... Vinna... Heim eldaði matinn og kelaði við kallinn eftir mat... farið að sofa um 12... ;)

Svo er það bara Þriðjudagurinn í dag og ég er í vinnunni.... Fer og sæki Ásgeir þegar vinnan er búin og svo kemur Guðni sem ætlar að elda matinn.... Fínt að þurfa ekki að elda svona einu sinni :D:D En já já meira hef ég svosem ekki að segja sko....

Annað er bara

TATA


» 14 hafa sagt sína skoðun

29.10.2007 18:15:55 / Elísa

Langar að koma með nokkur góð spakmæli við hæfi... ;)

Ég geri það sama við vini og bækur. Ég vil vita hvar ég hef þá, en nota þá sjaldan :D :D 

Hamingjan er ekki fólgin í því að gera það sem þú hefur ánægju af, heldur hafa ánægju af því sem þú gerir..;) 

Seigðu ekki vini þínum það leyndarmál sem óvinur þinn má ekki komast á snoðir um..;) 

Að uppgötva að ástin er endurgoldin ætti að leiða til þess að ástfangin maður sæi elskuna sína allsgáðum augum: “Hvað “hún” er nógu lítillát til að elska jafnvel þig? Eða nógu heimsk? Eða…eða…???   :D :D 

Það er siðsamlegt ef þér líður vel á eftir… :D 

Hef svosem ekki mikið að segja... Nenni ekki að skrifa um helgina núna.. það kemur síðar.. En fremur fullkomin helgi í nánast alla staði fyrir utan smá vesen en já... :D:D 

En núna ætla ég að fara að elda .... Og kvöldið fer í það að kela við kallinn :):) ekki sem vest ha??? heheh 

En segi ekki mera um það en

TATA


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 17:59:47 / Elísa

Þrýstingur... Það er nefnilega málið!!!!!

Jæja þá… þá er best að koma með eitthvað smá svona hérna… nenni því ekki neitt en verð að láta undan þrýstingnum…. ;) 

 Heyrðu eigum við ekki bara að byrja á helginni….. Föstudagurinn var þannig að Mamma kom hérna um hádegi og við fórum í Toys”r”us búðina sem var bara gaman og temmilega mikið af fólki þannig að við gátum skoðað í róg og næði… Svo fórum við í ljós og fórum svo heim að gera okkur til og fórum svo á kokteil boð hjá Viðskiptablaðinu og Drífa hitti okkur þar…. Fórum við svo þaðan á Hornið og fengum okkur að borða sem var mjög gott…. Þaðan fórum við svo með leigubíl uppí Borgarleikhús og fórum á leikritið Ást… Sem var að mér finnst alger snilld…. :D:D:D Þegar það var búið fórum við með strætó niðrí bæ og settumst aðeins á Celtic Cross og þaðan aðeins á Dillon og þaðan heim um 1 leitið…..  Þá var bara farið að sofa…. Mmmm góður dagur….

 Laugardagurinn rann svo upp og farið var að undirbúa afmælisveislu…. Kom svo liðið í afmæli milli 5 og 7 og var mikil gleði og mikið af gjöfum…. Svo gengum ég, Drífa og Mamma frá eftir að allir voru farnir og kom svo Maggi og við fengum okkur í glas… Ákveðið var svo að fara á Players og hitta þar Pabba og Jóa… Var mjög gaman þar og skemmtum við okkur mjög vel… Þaðan fóru mamma og Drífa heim en ég fór með Pabba í bæinn og fórum við á Amsterdam sem var mjög skemmtilegt og fróðlegt… heheheh Sníkti ég svo far með Gísla og Anný Rós heim.. Mjög svo búin á því í alla staði…. Heheh  

Sunnudagurinn var helvíti get ekki sagt annað… ég sem verð aldrei þunn varð svona rosalega þunn jesússs minnnn góður bara…Kom Alma og við settum upp smá veislu og Guðni kom svo með stelpurnar og hitti mömmu hehehehhe úfff hehehe :S:S :D nei nei það var í góðu lagi… :D Mamma og Drifa fóru svo til Keflavíkur og við Ásgeir kúrðum eftir degi…. Kom svo Guðni eftir að hafa farið með stelpurnar heim og við kúrðum fram undir miðnætti… Mamma kom svo heim og farið var að sofa…. 

Mánudagurinn rann þá upp og ég var að snúast með mömmu fram að hádegi og fór hún þá í flug heim og ég í vinnu….. Vann ég til 5 og náði þá í Ásgeir Örn í leikskólann og fórum við heim að elda matinn… Helga og Guðni komu að borða og Helga passaði meðan við Guðni fórum í bío á The heartbreak Kid… Mjög fyndin mynd… hhehe Ég fékk líka að velja sko… hheh :D:D Svo fórum við heim og farið var að sofa…. 

Þriðjudagurinn og Elísa orðin veik ojjjj barasta…. Var ég orðin fín um kvöldið en vaknaði ég svo á Miðvikudagsm ekkert betri og Ásgeir Örn líka að drepast í maganum svo við mæðginin vorum heima…. L ekki gaman hjá okkur…  

Svo fer bara að líða að helginni og á laugardaginn er ég búin að biðja Guðna að vinna ekki svo að við getum þá kannski gert eitthvað saman… ekki ég að djamma og hann að vinna, nenni því ekki núna… hann getur bara unnið á föstudaginn og sinnt mér á laugardaginn hehehehehehhehehehhe talandi um frekju eheheh nei nei ég er það ekki neitt var einhver að segja það eða….. ??? heh

Ætla ég líka að hafa smá afmæliskaffi fyrir vínkonurnar þar sem það var pabba helgi hjá þeim flestum sl. Helgi… svo það verður annað afmæli sem er fínt fyrir Ásgeir Örn.. Það var svo gaman síðustu helgi hjá honum… J Alma mín Ætlar líka að koma í bæinn sennilega á Föstudaginn og vera með okkur á laugardaginn…. Sem verður bara gaman…. 

En já já ég er nú búin að segja alveg heill mikið núna og er ekki viss um að ég nenni að vera að skrifa mikið meira í dag….Veit ekkki hvort ég eigi að tala um skítuga stráka á skítugum bíl með skítugar hugsanir…. Nei nei best ég hætti við það í bili… Læt einhvern annann um það held ég bara…..  

En já já þið segið það… ég held ég hafi ekkert til að bulla um sko…. Nema já Ásgeir Örn sagði okkur það í gær og Krúsilíus byggi í tippinu hans… heheh Svo hló hann eins og ég veit ekki hvað í veit ekki hvað langann tíma…. Fannst þetta ekkert smá fyndið hehehe  Það er naumast hvað þessi börn eru að hugsa um hehehehe JJ En já núna er ég held ég hætt…

Veit ekkert hvað ég get bullað meira svo ég held ég segi bara TATA

:D:D:D

 

Svo er bara að kommeta... Þið eruð ekkert of góð til þess sko... Koma svo....!!! ;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Klukkan
Dagsetning
10. febrúar 2012
Könnun
Hvernig finnst ykkur að Eurobandið fari til Serbíu??




Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Myndir
Klukkan
Leitarbox